If I'm not back in 5 minutes..just wait longer

Það er eins gott að þú sért með súkkulaði í vasanum

21.02.2008 17:09:19 / sonja

Heyrðu jaaáá..

In case you havent noticed þá er ég nánast hætt með þetta blogcentral rugl.. en það er samt sem áður til MYSPACE :haha: það er miklu skemmtilegra.. www.myspace.com/appelsinugums

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 10:56:39 / sonja

Víííjj!!

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Kamillaaaa.. hún á afmæli í dag:!::!::haha: Til hamingju með 19 ára afmælið elskan ;*;**

Til þín Kamilla mín:

Megirðu alltaf:

  • Ná að opna útidyrnar og komast í símann áður en hann hættir að hringja
  • Velja einmitt rétta vínið þegar vínþjónninn ætlar að láta ljós sitt skína
  • Muna eftir rennilásnum
  • Eiga fyrir farinu heim
  • Vera einhverjum nauðsynlegur
  • Finna óvænt fé í frakkafóðrinu
  • Furða þig á eigin hæfni
  • Komast að því að óárennilegt gluggaumslagið hefur ekki að geyma reikning heldur kvittun
  • Verða ástfanginn af raunveruleikanum
  • Finna einmitt rétta tilsvarið - stutt og laggott og eftirminnilegt, nákvæmlega á stundinni en ekki hálftíma seinna.

 

Ég vildi að ég gæti sagt að þetta kæmi alfarið frá mér en ég stal þessu.. ég skal viðurkenna það:$

 

Þrek og þor
Væri það á mínu valdi að veita þér eina ósk myndi valið reynast mér erfitt - að vita hvaða gjöf færði þér hamingju. Fegurðin getur verið hættuleg gjöf, visku verða menn að afla sér sjálfir, ástin verður að vera eigið val. En að athuguðu máli myndi ég óska þér hugrekkis - ég held að það væri besta gjöfin =)
 
 
 
 
 
Ég vildi óska að ég gæti bjargað þér frá öllum sorgum, áföllum og mistökum í lífinu. En
þá værir þú ekki lengur ein af okkur hinum hér á jörð. Það eru ekki síður hjartasorgirnar en hamingjustundirnar sem skapa einingu og innileg tengsl innan fjölskyldunnar, í hjónabandi eða milli vina =)
 
 
 
Til hamingju með afmælið elskan mín, vonandi verður þetta frábær dagur! Get ekki beðið eftir helginni ;) I'll be seeing you, love you honeybun <3 ;*;**
 
-Sonja 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 11:14:13 / sonja

Ég vill fá sumar takk!

Einhverra hluta vegna þá er lífið mikið einfaldara að sumri til! Vissuði það?

Eníveis, fór í afmæli til Siggu minnar í gær og það var heavy cozy :) Hún bauð í mat og það var tortillas með kjúkling og sonna, rosa nice! ;)  Hún bauð semsagt mér, Kamillu, Elínu, Tinnu og Svanhildi og allt eru þetta stelpur sem ég er búin að þekkja way back, nema Svanhildur.. þekki hana ekki neitt :$;) Síðan helltu þær í sig og ákváðu að skella sér útá lífið nema ég.. var alveg gjörsamlega að drepast í hnénu þannig að ég fór bara heim :$ Það verður bara bætt úr því næstu helgi þegar Kamilla heldur uppá sitt afmæli og djammað af sér eyrun..sé bara til hvað fjárhagurinn segir..:frown: eeeeníveis.. ég er farin að snæða..

Sonja kveður með svangan mallakút


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 21:30:40 / sonja

Ljóta Akureyri..!!

Akureyri er ööömurlegur bær! Mér fannst hann alltaf æðislegur og gat sko ekki hugsað mér að búa eða vera annarsstaðar! Sko.. ég er alveg að skríða í 19 ára aldurinn, verð 19 í apríl og það er hvergi hægt að fá almennilega vinnu hérna nema vera 20-25 ára og þá er ég að tala um án menntunar! Ok, maður getur svosem ekki verið að setja neitt háann standard ef maður er ekki menntaður en for fuck sake sko :frown: Ég er alvarlega farin að halda að grasið sé grænna hinumegin og að ég ætti að drulla mér suður, enda alveg ástæða til sem togar mig þangað, eða pilla mér aftur í skóla. Vinnuveitendur hérna á Ak gera svo háar kröfur þótt að þetta sé vinna sem þú einfaldlega þarft ekki menntun í eins og til dæmis að vinna á fucking kassa í rúmfó:frown: Svo þegar kemur að því að fara í skóla þá veit ég ekkert hvað mig langar að læra. Það freistar mín rosalega að fara og læra skartgripasmiðinn en svo veistu bara ekkert hvort að fólkið sé að fíla þína hönnun og þá ertu bara fucked! Og guð veit að þó að pabbi minn búi á Egilsstöðum þá er ég ekki að fara þangað að vinna og fremja félagslegt og andlegt sjálfsmorð. Svo er þetta samfélag bara að kúka uppá bak sko.. það er gert ráð fyrir því að maður flytji út frá foreldrum sínum, í mínu tilfelli mömmu, en samt er ekki gert ráð fyrir manni útí samfélagið fyrr en maður er orðinn tvítugur. Þetta er alveg fáránlegt.. kannski maður flytji bara út:S Fara bara til Köben og lifa lífinu þar:$ Kannski er þetta bara mér sem finnst þetta um Akureyri.. ef ekki þá endilega tjáið ykkur.

 Ég vill fá comment takk!!

 

-Gone fishing.. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 12:46:33 / sonja

Fjarnám?

Jæja, nú er ég komin með þá dillu í hausinn að pæla í að skrá mig í fjarnám í haust. Mig langar að taka heimspeki, sálfræði og uppeldisfræði. Svo er mín alvarlega að pæla í að hætta að reykja og bara hætta þessu rugli.. vond lykt og svo er þetta svo ógeðslega dýrt!! :$ Vill nota tækifærið og óska henni Siggu til hamingju með 19 ára afmælið í dag!!:haha: svo er það Berglind 20.jan og Kamilla 22.jan og allar verða þær 19 ára.. ég verð ekki 19 fyrr en einhverstaðar waaay back í apríl.. oh well.. 19 ára afmælið er svosem ekkert merkilegt ;) held bara uppá 18 ára afmælið mitt aftur, þar sem ég var fárveik þegar ég varð 18.. :lol:Nenniði að commenta um dæmið með fjarnámið..?? Þakkir, þakkir..

-Out ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 12:43:58 / sonja

Nú er tími

Já halló krakkar mínir. Mér datt það nú svona í hug að henda inn einu lásí bloggi hérna.

Kannski maður deili með ykkur gærdeginum bara. Ég vaknaði klukkan 11:55 og lagaði aðeins til, svo heyrði ég í mömmu og hún og Sverrir komu og náðu í mig og við fórum í Bónus og versluðum. Svo heyrði Kamilla í mér og ákvað að kíkja í heimsókn um kvöldið þannig að mín tók sig bara til og verslaði inn fyrir cozy-time kvöld. Svo kom Kamilla og við elduðum okkur pastarétt og snæddum hann með bestu lyst.. svo var ísblóm í eftirrétt :D Svo kom Elín elskan og var eitthvað að reyna að "vekja" mig.. lá hálfsofandi í sófanum haha :haha: ooog ÞAÐ TÓKST:!::D Þannig að við vorum bara eitthvað að glápa á sjónvarpið og ég tek það ekki fram hérna hvað var verið að horfa á en stelpurnar vildu eeeendilega horfa á þetta!!! Svo spurði Ragnar okkur hvort við vildum ekki kíkja á rúntinn og við skelltum okkur með kallinum ;) En ég bíð bara í ofvæni eftir morgundeginum svo að ég fái að vita hvort ég fái vinnuna eða ekki, sem ég vona svo innilega!! Kjéllan ætlar nebbla að skella sér suður 1.feb og hitta mann og annan.. og kannski Kofi Annan líka.. hlæhlæhlæhlæhlæ ég eeeer svo fyndin :haha::haha: og líka fá mér gat í tunguna ef það er hægt að gera gat!! tunguhaftið mitt nær svo langt :whut: 

Farin að gera eitthvað stórkostlegt af mér!! ;) blelleeeer

Lag dagsins; Britney Spears - Piece of me  


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 09:49:39 / sonja

Shibbyyy

My baby's back home!!!! Get ekki lýst því hvað ég er ógeðslega ánægð að fá Bóbó minn heim aftur!! :D:D:cry: mig langar að skæla úr gleði..

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 12:42:26 / sonja

Auglýsing

KISINN MINN ER TÝNDUR:!::!::!:

Hann er:

  • Ekki fullvaxinn en stálpaður  (rúmlega 3ja mánaða)
  • Grábröndóttur og hvítur
  • Hann heitir Bóbó en er oft kallaður Björn
  • Með bleikt nef og bleika þófa
  • Laðast að fólki
  • Ekki eyrnamerktur
  • Ekki með ól
  • Hann er búinn að vera týndur síðan í fyrradag (við búum í Tjarnarlundi)
  • Og hann er ábyggilega rosalega svangur og kaldur :cry:


Ef þið hafið séð hann þá þætti mér vænt um ef þið mynduð hafa samband í:

Sonja: 863-5279         Sigmar: 866-2308         Heima hjá okkur: 462-1546

Hans er gífurlega, ólýsanlega sárt saknað!!! :cry::cry:  

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 10:18:50 / sonja

!!

:frown: Viljiði gjöööra svo vel og kvitta fyrir ykkur :frown:

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:49:15 / sonja

Thou shalt not fall in love so easily

Leyfði uppáhalds setningunni minni að standa í titlinum ;)

Kominn tími á blogg eða? Heeeld það...

Shit, ég er svo þreytt að mig svíður í augnlokin =/ Been sleeping like a pregnant woman today though.. :$:haha: Var í matarboði hjá mömmu og sofnaði næstum ofan í diskinn haha!! En það slapp fyrir horn, var svo ógeðslega gott í matinn! Það var svona "bæjonskinka" veit ekki hvernig það á að skrifa það..:$ og svo var eplasalat (svona bleikt) og heimatilbúið kartöflusalat, gular baunir, lambahryggur, brúnaðar kartöflur, brún sósa og svo auðvitað gamla góða jólaölið til að sötra með =) en ég missti af eftirmatnum.. sofnaði í sófanum :$ En annars er ég komin heim núna, búin að koma mér vel fyrir í sófanum með teppi og er að hlusta á Hauk Morthens :haha::^) híhí..  En allavega.. hef ekki mikið að segja í bili skom.

Lag dagsins; Haukur Morthens - Capri Katarína <3 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 19:58:24 / sonja

2008??

Hef nákvæmlega ekki neitt að gera þannig að ég skelli bara inn einu bloggi!

Var hjá mömmu yfir jólin og borðuðum við óógeðslega gott villibráðakryddað lambalæri, mamma á sko hrós skilið ;) Sverrir var að syngja í messu þannig að hann kom aðeins seinna.. betra er seint en aldrei :D Svo þegar allir voru búnir að borða þá var hjálpast að við að taka af borðinu og Sara Viktoría var að fara á límingunum! :haha: En svo leið nú að því að við opnuðum pakkana og allir voða glaðir =) og svo átti litla jólabarnið hún Kristrún Ósk afmæli og varð 8 ára! =) Fyrir þá sem ekki vita þá er Kristrún systurdóttir min..

Ég man ekki einu sinni hvað ég gerði á jóladag.. :haha: Jú ég fór sígórúnt með Perlu og það var ekkert smá nice að komast aðeins úr þessu jólaveseni og í hversdagsleikann með Perlu =)

Annan í jólum átti amma mín afmæli og varð 74 ára, til hamingju með það amma mín ;* og ég er ekki frá því að ég hafi farið annan sígórúnt með Perlu! :haha:

Siðan komu þarna 2 venjulegir dagar inná milli þar sem var bara unnið og eitthvað crap..

Svo komu ÁRAMÓTIN :D þetta voru geggjuðustu áramót sem ég upplifað hingað til..!!!! Borðaði hjá systur minni og pabbi og konan hans voru þar svo kom Jón Hjörtur og sótti mig og við rúntuðum og ég drakk bjórinn minn og hlustaði á GEÐVEIKU græjurnar hans.. manni klæjar í kokið og hárgreiðslan fer öll í fokk þegar hann blastar þetta..:haha: og svo hringdi Habbý og var að tapa sér útaf hún átti engann bol til að vera í þannig að við skutluðumst eftir henni og ég lánaði henni bol. Svo fór ég heim til mömmu og Jón fór eitthvert annað.. :D og þar voru þau saman komin Mamma, Sverrir, Sara Viktoría, Zanný og Auðunn sonur Sverris og það var drukkið ennþá meira og horft á skaupið, ég horfði reyndar ekki og ætlaði bara að fara að mála mig og svona og fattaði svo að bakpokinn með öllu draslinu var í bílnum hjá Jóni þannig að ég hringdi i hann og bað hann um að koma þegar hann hefði tíma. Svo kom hann og ég "gleymdi" að mála mig, það var svo gaman :D Svo var sprengt upp og Auðunn sá alfarið um þann pakka.. hann er svo harður :haha: haha!!! svo fórum við Jón og náðum í Bettsy og Luis og rúntuðum aðeins með þeim og fórum svo aftur heim til mömmu og drukkum aðeins meir.. :D og svo fórum við á Sjallan og lentum í smá veseni með dyraverðina en mín reddaði því sko ;) og já. við vorum öll orðin 18 ára!! hehe! Það var svo stappað í Sjallanum að ég er marin á báðum ristunum.. get varla verið í skóm.. :( Djöfull var ógeðslega fkn brjálað stuð í sjallanum!!! shiiiiit... hitti FULLT af fólki og jám..voða gaman :D svo hittum við Gumma og fórum með honum.. semsagt ég, Bettsy, Gummi og Luis svo var ég orðin svo ógeðslega þreytt að ég sofnaði bara :$ og ég er örugglega að gleyma einhverju þannig að ég bæti þvi bara við l8er.. :D

Gleðilegt ár allir!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 07:51:24 / sonja

..

Ég er búin að ná að snúa helvitis sólarhringnum við hjá mér.. mér til mikillar ánægju eða þannig! :frown: þannig að maður hangir bara á netinu og er asnalegur. Var einmitt inni á síðunni hennar Perlu og fann eitt ógeðslega sææætt og ætla að deila þessu með ykkur ;) En annars, gleðilegt nýtt ár allir og gangi ykkur allt i haginn kæru kumpánar! :D

A girl asked a guy if he thought she was pretty, he said...no.

She asked him if he would want to be with her forever...and he said no.

Then she asked him if she were to leave would he cry, and once again he replied with a no

She had heard enough.

As she walked away, tears streaming down he face the boy grabbed her arm and said,

You're not pretty, you're beautiful.

I don't want to be with you forever, I NEED to be with you forever

And I wouldnt cry if you walked away...I'd die...

óóógó sætt :D

 

Lag dagsins; Colby Caillat - Bubbly


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 21:45:51 / sonja

Sjhæse..

Vá.. Jólin maður! Ég er búin að snæða svo mikið að ég þarf ekkert að éta næstu mánuði!! :haha: en já, áramótin! Palli verður í Sjallanum og sææææll hvað ég hlakka til maður!! Djöfull skal þetta verða ooofur djamm :haha: Habbý átti afmæli 22.des og varð mærin 18 ára gömul... AT LAST :haha: og það var djammað og drukkið og ýmislegt annað..hehehhhe;) en til hamingju með þetta ástin míííín ;* Hmm.. Pabbi minn og konan hans koma sennilega á föstudaginn og eyða áramótunum hérna á Ak en þau búa á Egs sem verður alveg ábyggilega bara fínt :)  en þar sem mér dettur ekkert sniðugt í hug að segja frekar en hinn daginn skal ég bara deila með ykkur hvað ég fékk í jólagjöf :D

Ég fékk:

  • Inniskó, sólarpúður, gloss, nærfatasett og gjafaöskju úr Body shop frá mömmu
  • Geðveik náttföt og Pottþétt 45 diskinn frá Laugu systir, Ladda og stelpunum.
  • Love by Morgan ilmvatnið og body lotion-ið frá Simma bróðir
  • Hálsmen og prjónavesti frá pabba og Mörtu
  • Englastyttu frá Söru litlu systir
  • Ullarsokka, húfu og skraut á jólatréið frá ömmu
  • "Hlotnist þér hamingja" bók og hálsmen frá Zanný vinkonu mömmu
  • Demantseyrnalokka frá Habbý ;*
  • Ilmvatn frá Elínu ;*
  • Armbandsúr frá Laugu frænku og Dóra
  • Geðveikt groovy kodda og ilmvötn frá Perlu ;*


Hmm.. held að ég sé ekki að gleyma neinu. Á samt eftir að fá eina gjöf í viðbót frá Silju og pabbi kemur með hana :D:D

En annars bara gleðileg jól elskurnar og hafið það sem allra best!!

Lag dagsins; Hjálmar - Leiðin okkar allra <3 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 17:18:43 / sonja

Amateurs!!!

Veeei! Ég er með kvef.. my favorite thing in the whole wide world :evil: Andskotans stífla í nefinu og nefrennsli og sviði og hausverkur og oj:!: I hate this..

Hér á ég fullt af úrvals kartöfluuuum dirillidei, best þær bragðast soðnar potti íííí bommbommbomm! Rauðar, gular, sumar á stærð við haus! (8) lallalaaa

Glúmur var róni... frá neeeeskauuupstaaaað!! Hann drakk í sig vínið óóóblaaandaaað.. og hvaaað með þaaaað (8)

já.. þetta eru lögin sem ég er búin að vera með á heilanum í ár og daga. Vildi bara deila því með ykkur.. ;) en semsagt það er mánuður og 2 dagar í fucking jólin og það er ekki alveg að gera sig því að jólin eru ekkert að koma hjá mér sko.. 

 

 

 FACE GAMLI DRULLUSOKKUR

Dear Mr. President,
Come take a walk with me.
Let's pretend we're just two people and
You're not better than me.
I'd like to ask you some questions if we can speak honestly.

What do you feel when you see all the homeless on the street?
Who do you pray for at night before you go to sleep?
What do you feel when you look in the mirror?
Are you proud?

How do you sleep while the rest of us cry?
How do you dream when a mother has no chance to say goodbye?
How do you walk with your head held high?
Can you even look me in the eye
And tell me why?

Dear Mr. President,
Were you a lonely boy?
Are you a lonely boy?
Are you a lonely boy?
How can you say
No child is left behind?
We're not dumb and we're not blind.
They're all sitting in your cells
While you pave the road to hell.

What kind of father would take his own daughter's rights away?
And what kind of father might hate his own daughter if she were gay?
I can only imagine what the first lady has to say
You've come a long way from whiskey and cocaine.

How do you sleep while the rest of us cry?
How do you dream when a mother has no chance to say goodbye?
How do you walk with your head held high?
Can you even look me in the eye?

Let me tell you 'bout hard work
Minimum wage with a baby on the way
Let me tell you 'bout hard work
Rebuilding your house after the bombs took them away
Let me tell you 'bout hard work
Building a bed out of a cardboard box
Let me tell you 'bout hard work
Hard work
Hard work
You don't know nothing 'bout hard work
Hard work
Hard work
Oh

How do you sleep at night?
How do you walk with your head held high?
Dear Mr. President,
You'd never take a walk with me.
Would you?
 
Já.. eins og ég sagði hérna ofar.. face gamli drullusokkur!!:haha: 

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 22:56:25 / sonja

Meeow

Það er vont veður úti.. oj.. vindur og ógeð! Eníveis.. það eru að koma jól og sumir eru að fara á límíngunum en ekki ég.. ég er alveg cool as a cucumber 8) en ég er búin að setja inn mynd af kisanum minum og hann er sætastuuuuur!! svo lítill og sætur og mjúkur og pínu feitur meiraðsegja líka :haha: Þegar maður á svona kúru dýr (hunda, ketti...) þá fattar maður hvað manni getur þótt vænt um eitt lítið dýr og það er skuggalegt! 8| en hérnaaa.. vá.. man ekkert hvað ég ætlaði að segja.. eeeehhhjk.. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6